Einstaklinga með skylduerfingja

Þjónustan er í boði fyrir ?

1. Einstaklinga í hjúskap og sem

2. eru fjárráða

 

Hvað felst í samningnum ?

1. Útbúin er erfðaskrá sem send er heim að dyrum til skráðs viðtakanda.

2. Lögfræðileg aðstoð er viðkemur erfðaskrá aðila

 

Hvernig fer þetta fram ?

Þegar við höfum móttekið pöntun ykkar fer lögfræðingur yfir þær upplýsingar sem þið hafið látið í té og útbýr erfðaskrána. Ef upplýsingar eru ófullnægjandi mun lögfræðingur hafa samband við ykkur með tölvupósti. Vinsamlegast athugið að það er á ykkar hagur og á ykkar ábyrgð að upplýsingarnar séu réttar og ítarlegar.

Erfðaskráin verður svo send með pósti innan 2-4 virka daga. Tafir geta orðið ef málið er vandasamt og þar af leiðandi tekið lengri tíma.

Vinsamlegast fyllið út spurningarlistann hér fyrir neðan. Svara þarf öllum spurningum. Um leið og pöntun hefur verið móttekin er ekki hægt að afturkalla hana en engu að síður er hægt að breyta samningnum ef eitthvað hefur misfarist við pöntun.

Til að koma í veg fyrir falskar bókanir munum við ekki byrja á gerð samninga fyrr en greitt hefur verið inn á rkn. 0348-26-004602, kt. 460309-1310 eða greiðsluseðill verið greiddur og kvittun send á [email protected] með nöfnum ykkar sem athugasemd. Við bjóðum uppá greiðsludreifingu til 3 mánaða.

Spurningarlisti fyrir Einstaklinga með skylduerfingja

Almennt um arfleifanda

Einungis er heimilt að arfleifa 1/3 hluta eigna þegar maður á skylduerfingja.

Lesið vel og vandlega yfir spurningarnar og svarið þeim eins ítarlega og vilji er fyrir hendi. Erfðaskrá.is tekur enga ábyrgð á réttmæti upplýsingana sem þið gefið upp.

Nafn*
Kennitala*
Fjárræði *

Flestir eru fjárráða við 18 ára aldur. Til þess að einstaklingur sé ekki fjárráða þarf að svipta hann fjárræði með dómi

Heimilisfang *
Póstnúmer *
Netfang *
Vinsamlegast staðfestið netfangið*

Skylduerfingjar

Með orðinu skylduerfingi er átt við maka og alla niðja aðila þ.e. börn, barnabörn osfrv. Nóg er að tilgreina börn séu þau til staðar nema barnið sé látið, ber þá að tilgreina börn hins látna barns séu þau til staðar.

Skylduerfingjar

Vinsamlegast setið inn nöfn og kennitölur skylduerfingja. Það getur verið fleiri en einn skylduerfingi í þessum lið

Erfingi

Upplýsingar um þann sem skal taka arf samkvæmt erfðaskránni.

Nafn erfingja 1 *
Kennitala
Heimilisfang
Nafn erfingja 2*
Kennitala
Heimilisfang
Fleiri erfingjar

Ef fleiri aðilar skulu taka arf samkvæmt erfðaskránni vinsamlegast tilgreinið þá hér með nafni, kennitölu og heimilisfang

Erfðahlutir

Vinsamlegast tilgreinið eins nákvæmlega og hægt er hvað skuli erfa, t.d. með fastanúmeri sé arfurinn fasteign. Séu erfingjar fleiri en einn þá er ágætt að tilgreina nafn erfingja fyrir aftan t.d. brúna leðursófasettið fær Páll Sigurðsson, 50% eignarhlut í fasteigninni Blómahöll með fastnr. 200-2002 fær Jóna Jónsdóttir. Ef erfingi á að erfa 1/3 hluta eigna arfleifanda en ekki tilgreindar eignir dugar að skrifa t.d. Páll Sigurðsson á að erfa 1/3 hluta eigna

Arfur *

Vinsamlegast setjið inn erfðahlutina hér fyrir neðan:

Arfur skal vera séreign erfingja í hjúskap

Hægt er að binda arfinn þannig að hann verði séreign erfingja í hjúskap og kemur þá ekki til skipta við skilnað

Annað

Vinsamlegast tilgreinið önnur skilyrði erfðaskrárinnar ef önnur en ofangreind

Vottun

Votta þarf erfðaskrá til að hún öðlist gildi.

Vinsamlegast veljið annan liðinn *

Skilmálar og annað

Annað

Ef það er eitthvað annað sem þið þurfið að koma á framfæri þá er það hægt hér :

Við hjá Erfðaskrá.is tökum ekki ábyrgð á fjárhagslegum né annars konar skaða, hvorki beint né óbeint, sem getur orðið til vegna notkunar yðar af þjónustunni. Við tökum heldur ekki ábyrgð á að samningarnir séu ekki notaðir. Allar upplýsingar eru á yðar ábyrgð og Erfðaskrá.is mun ekki staðhæfa uppgefnar upplýsingar. Ekki er hægt að fá endurgreitt þegar þjónustan verið pöntuð og greidd. **
2019 © Erfðaskrá.is

Við höfum móttekið póstinn frá þér.

Við munum vera í sambandi innan 2-3 virkra daga.