Erfðaskrá
Erfðaskrár eru skriflegur löggerningur manna um hvernig skuli ráðstafa eignum þeirra að þeim látnum.
Samkvæmt 34. gr. erfðalaga eru, allir þeir sem eru 18 ára og eldri, heilir andlegri heilsu á þann hátt að þeir séu færir um að gera erfðaskrá á skynsamlegan hátt, heimilt að gera erfðaskrá.
Í nútíma samfélagi eru fjölskyldubönd oft mjög flókin og ekki skýr hver réttarstaða einstaklingana er. Sem dæmi erfa stjúpbörn ekki sjálfkrafa stjúpforeldra sína og ekki er sjálfsagt að annað hjóna geti setið í óskiptu búi við lát hins. Sambúðarfólk erfa ekki hvort annað nema gerð sé erfðaskrá um að svo verði. Nauðsynlegt er því að einstaklingar, hjón og sambúðarfólk hagi málum sínum svo að réttarstaða allra sé ljós. Hægt er að gera slíkt með erfðaskrám.
Hafðu sambandÞjónusta
Hjá Erfðaskrá.is bjóðum við uppá þá þjónustu að gera erfðaskrár á netinu fyrir fast verð. Þið fáið erfðaskrána sendan heim að dyrum og öll vinnan fer fram á netinu.
- Öruggt, þægilegt og einfalt
- Við bjóðum upp á 5 konar samninga og eru þeir allir með fast verð
- Samningur 1 er fyrir hjón. Fast verð 70.000 kr.
- Samningur 2 er fyrir sambúðarfólk. Fast verð 70.000 kr.
- Samningur 3 er fyrir einstaklinga sem eiga skylduerfingja. Fast verð 70.000 kr.
- Samningur 4 er fyrir einstaklinga sem eiga ekki skylduerfingja. Fast verð 70.000 kr.
- Samningur 5 er niðurfelling /breyting á erfðaskrá. Fast verð 30.000 kr.